04september

Ný síđa :D

Komin með nýja síðu !! ;D 

www.blog.central.is/birna-3
04. september 2006 klukkan 03:11
Birna Ásbjörnsóttir
1 athugasemd
24ágúst

FS byrjađur og Björg farin !

Þá er skólinn byrjaður!!  Stuttur dagur í dag og frekar afslappaður. Svo byrjar þetta allt á morgun með stafsetningarprófi strax kl. 8 ,, frekar spennandi !! hehe :D  Ég er bara nokkuð sátt við áfangana og fólkið sem er með mér í þeim. ;D

Svo fór Björg til Danmerkur núna áðan.. ég var nú bara farin að sakna hennar strax klukkutíma seinna!! Enginn Grey´s Anatomy félagi eða göngufélagi !! Maður verður nú bara að koma einhverjum inn í þetta allt !  Ég verð nú bara að vera dugleg við að heimsækja hana í Köben :D
 
Ég held að ég hafi ekkert frá meiru að segja !!
-Birna
24. ágúst 2006 klukkan 01:31
Birna Ásbjörnsóttir
5 athugasemdir
15ágúst

Myndir

Ég er búin að setja inn myndir frá utanlandsferðinni,, ég nennti ekki að setja allar!! :P  hehe:D ,,

Á laugardaginn þegar við Björg komum heim, voru amma Björg og afi Villi mætt með skúffuköku !  Alveg æðislegt ;D Um daginn var ég svo bara að chilla en um kvöldið kíkti ég aðeins út í sjoppu og eitthvað  ;)

Í gær skutlaði Björg okkur Önnu til Keflavíkur og við tókum spólu á leigu.. Last holiday ;P Mjög skemmtileg :D 

Í dag fór ég svo í sjúkraþjálfun :D Gott að vera aftur mætt þangað :D

En já endilega að kíkja á myndirnar :D
-Birna
15. ágúst 2006 klukkan 01:21
Birna Ásbjörnsóttir
2 athugasemdir
12ágúst

Komin heim ;D

Þá er kjellan komin heim á Klakann ! ;D Lenti eitthvað rétt yfir 15:00  ;D 

En vá tónleikarnir voru geðveikir .. ég er ekki alveg að átta mig á því hvað þeir voru skemmtilegir!.. Ég og Björg virum búnar að læra mest alla textana og sungum hástöfum með  :D  Ég hef aldrei almennilega fílað lögin hans neitt mikið en nú eru þau alveg að detta inn :D 
Nokkur sýnishorn !! :D  







Svo á ég eftir að setja inn myndir af allri ferðinni !! ;D  

-Birna
12. ágúst 2006 klukkan 22:36
Birna Ásbjörnsóttir
3 athugasemdir
11ágúst

10. ágúst

Það er búið að vera mjög gaman hjá okkur systrunum hérna í Köben !! ;D      

Á mánudaginn ætluðum við Björg að fara í sólbað með Ingibjörgu vinkonu Bjargar!! En þá var bara engin sól... svo við löbbuðum bara Strikið  :D  Fórum svo í bíó um kvöldið á myndina The break up  ;)  
 

Á þriðjudaginn fórum við svo í miðbæinn og löbbuðum um litlu göturnar við Strikið.. við erum neninlega komnar með nett ógeð af búðunum á Strikinu!! ;D  Mæli eindregið með búðunum þar,, litlar og sætar :P
 

Á miðvikudaginn fórum við svo til Svíþjóðar,, vorum þar allan daginn bara að kíkja í búðir og svona ,, já við vorum í Malmö það eru bara 40 mín. þanngað með lest.. mjög gott að breyta aðeins um umhverfi og svona !! ;D
 Í dag skelltum við svo okkur fyrst til Lyngby,,  fórum í litla verslunnarmiðstöð þar og í Magasin ;D   Síðan fórum við í Christianiu .. vá hvað ég elska þann stað !!  fyrir þá sem vita ekki hvað það er þá er þetta svona eins og lítið byggðarfélag í Kaupmannahöfn og það er þvílík hippamenning þar !!   Fólk er bara að reykja hass og slappa af !! :P  Og húsin þar eru geðveik !! öll svona heavy flott máluð ;)  Þar keypti ég mér 2 armbönd, bol og veski ! :D  Svo hittum við nettan gaur sem var búinn að reykja eitthvað sterkara!!   Hehe:D   og hann bauðst til að gera í mig dredda,, ég hefði látið til skarar skríða ef ég vissi ekki að mamma myndi tjúllast!!  Hehe.. geri þetta þegar ég verð 18 ;) mmm ;)  Svo fórum við bara í Fiskitorfuna og borðuðum á Pizza Hut og komum svo bara heim :D

Svo er það bara Gavin DeGraw!!  Við erum orðnar svaka spenntar .. Erum/rifja upp textana ;D

Svo bara heimferð á laugardaginn :D vá hvað sumarið er fljótt að líða !! :S

 
En þetta er nóg í bili !!  -Birna
11. ágúst 2006 klukkan 00:26
Birna Ásbjörnsóttir
2 athugasemdir
05ágúst

5. ágúst

halló ;D

bara að láta vita af mér ! :D

Það er allt bara rólegt hérna í Kaupmannahöfn, Björg systir er búin að fá inngöngu í læknisfræði í Kaupmannarhafnarháskóla! ;D   Maður efaðist nú aldrei um það .. :D    En við fjölskyldan erum bara búin að hafa það næs ! Búin að fara auðvitað í Tívolí og við fórum í nokkur tæki!! 

Á morgun er svo ár síðan ég spilaði seinast fótbolta!!  :S  shit!!  Ég sakana hans svakalega, en hvað getur maður gert!!  jú maður getur verið duglegur að gera æfingarnar!! ;D

Á mánudaginn fara mamma, pabbi og Bergrún svo heim!  Ég og Björg ætlum að vera hérna aðeins lengur en við förum heim laugardaginn eftir já viku núna !  Við ætlum bara að hafa það gott og fara reyndar á tónleika með Gavin Degraw..mm hlakka til :D 

En ég hef ekkert frá neinu svakalegu að segja !! :D

Bless í bili !!
05. ágúst 2006 klukkan 23:37
Birna Ásbjörnsóttir
4 athugasemdir
29júlí

Barcelona - Ĺrhus

Í gær skelltum við okkur fjölskyldan til Århus. Við komum þanngað kl. svona 2 og litum aðeins á umhverfið og í búðir!!  Þegar við vorum búin að borða á einhverjum matsölustað fórum  við svo á leikvanginn hjá Århus!.  Þar biðum við eftir að rútan kæmi með öllum leikmönnunum, það var engin smá stemning,  Eiður Smári fékk mesta klappið þegar hann steig úr rútunni enda fullt af Íslendingum!!  og já Siggi ex-bekkjarbróðir var þar ! ;D  Það var ekkert smá gaman á leiknum.  Barcelona var nú með yfirhöndina mest allan leikinn en Århusmenn voru samt nokkuð sprækir!!  Eftir leikinn lá svo leið okkar aftur til Köben ! :P   

Í dag var svo bara chill vorum bara að labba um miðbæinn, kíktum á nokkra markaði ..:P 

Ég hef þetta bara stutt,, það er nefnilega örtröð í tölvuna :D  

-Birna
29. júlí 2006 klukkan 22:13
Birna Ásbjörnsóttir
4 athugasemdir
27júlí

Komin aftur til DK ;D

Hææ ! ;D
Þá er kjellan aftur mætt til Danmerkur! :P  Þetta var ekkert smá skemmtileg ferð, við keyrðum bara af stað og við gistum í litlum, þýskum, fallegum bæ sem heitirBad eitthvað. Þetta var samt svona gamals fólks bær eiginlega bara gamalt fólk!! En þaðan fórum við svo til Amsterdam, þar gistum við á gólfhóteli sme var svakalega flott :D   Við vorum í Amsterdam í tvær nætur, þar kæiktum við auðvitað í búðir og Önnu Frank safnið og líka van Gogh safnið ;P  Frá Amsterdam fórum við svo til Berlínar!! Mér finnst Berlín æðisleg!.. Við skoðuðum allt tengt Kalda stríðinu!  Mér fannst það ekkert smá gaman, ég hef svo gaman af öllu í sögunni ;D  En við kíktum líka í búðir þar.. !! Svo í Berlín var auðvitað allt tengt HM ! Þótt það sé svolítið langt síðan það var !  ;D

Ég verð svo að segja ykkur eina sögu!!  engin smá tilviljun !!
Á leiðinni til Berlínar þá eru á hraðbrautinni fullt af bensínstöðum/verlsunum ! Við stoppuðum í einni og versluðum eitthvað!! Í sjoppunni tók ég eftir einhverjum strák, ok allt í lagi með það !! ;P  Daginn eftir þegar við vorum komin til Berlínar þá fórum við í safn og þið vitið ekki hvað!?  Gaurinn var í safninu líka!! Hann var alltaf að horfa á okkur!  En ekki nóg með það þá fórum við í búð þarna aðeins lengra á götunni ..þá er strákurinn þar líka!! :P  össs

En já svo er ég að fara til Århúsa á morgun á leikinn Barcelona- Århus, fyrsti leikurinn hjá Eiði Smára !  Ég hlakka ekkert smá til ;)

En þá er þetta komið í dag!!

Kær kveðja,
 Birna
27. júlí 2006 klukkan 22:34
Birna Ásbjörnsóttir
5 athugasemdir
21júlí

16 ára ! ;D

Góðan daginn! ;P

Þá er ég bara orðin 16 ára og afmælisdagurinn að verða búinn .. En hann er búinn að vera mjög skemmtilegur!!
Þegar ég vaknaði biðu mín tveir pakkar, það er nú alltaf gaman að fá pakka, svo eru systur mínar svo fyndnar og það var bara þvílíkt ljóð í einu ! .. hehe ekkert smá fyndið !! ;D  En við´fórum í Bakken, það var mjög gaman !  Við fórum í nokkur tæki t.d. í 5 víddar bíó, þá var bara svona venjuleg þrívídd og svo voru sætin alveg á fullu og allt það !  Það var bara nokkuð skemmtilegt ! ;D
Þegar við vorum komin með nóg af Bakken fórum við aðeins í miðbæinn en nógu lengi til þess að ég gat keypt mér sitthvað í H&M .. hehe:D  Um kvöldið borðuðum við svo á Jensen´s böfhus, vá hvað það var gott, tvær kjúklingabryngur og svo eftirréttur!!  Eftir  góðan matatíma keyrðum við heim í Kagså og Þar beið dýrindis skúffukaka sem Björg og mamma bökuðu í gær!  hún var mjög góð :P
Rétt áður en við borðuðum kökuna guide-aði Bergrún mig hérna um neighborhood-ið þar sáum við körfuboltavöll og fórum að skjóta í körfuna!  Þá löbbuðu einhverjir tveir strákar framhjá og einmitt þegar ég ætlaði að fara að skjóta þá kallaði einn strákurinn eitthvað !! og mér náttúrulega brá ekkert smá!! Þið stelpurnar vitið hvernig mér getur stundum brugðið við ekki neitt!!  

En ég blogga sennilega ekkert fyrr en eftir viku!  ég er nefnilega að fara til Hollands og svo til Þýskalands! ;D   en kannski reyni ég að komast á eitthvað netkaffi, maður veit aldrei ;P

Ég er orðin svakalega þreytt á þessum hita!!  ég er gjörsamlega að kafna allan daginn !! úff :P  En ég var að frétta að það væri loksins komiði gott veður á Íslandi svo hafiði það gott í hitanum !  hehe:D  

En see you later

-Birna
21. júlí 2006 klukkan 02:58
Birna Ásbjörnsóttir
3 athugasemdir
20júlí

Mćtt til DK ;D

Nú er ég bara komin til Danmerkur !! ;P
Það var ekkert smá gaman að hitta píurnar aftur .. Annars er ég bara búin að vera að kíkja í búðir og versla smávegis og svo í dag fórum við á Jægtvej og vorum að kíkja á umhverfið þar :D  Í kvöld fórum við fjölskyldan í bíó á Pirates of the Caribbean Dead man´s chest, hún var bara nokkuð góð og ég bíð spennt eftir þeirri þriðju! :P




Svo á kjellan bara afmæli á morgun !!  Loksins að verða 16 :D

En ég kveð að sinni

-Birna
20. júlí 2006 klukkan 01:16
Birna Ásbjörnsóttir
4 athugasemdir

Leit

Auglýsing

Könnun

Skóli?